Eins og skot – Handbók
8.990 kr.
Skyldueign endurhlaðarans!
Sama hvort þú ert byrjandi eða ert búin/n að endurhlaða skot í áratugi, þá er nauðsynlegt að eiga ítarlega ÍSLENSKA handbók um skotfæri, hleðslu þeirra, meðferð og virkni.
Á lager
Vörulýsing framleiðanda
Lýsing
Í þessari bók er fjallað um skotfæri, samsetningu þeirra og virkni. Hér er að finna, í fáeinum dráttum, þróunarsögu skotfæra í gegn um aldirnar. Fjallað er ýtarlega um patrónur, hvellhettur, púður og byssukúlur og val á þeim út frá fyrirhugaðri notkun.
Í framhaldi af því er farið nákvæmlega yfir það hvernig þessum hlutum er raðað saman þannig að úr verði fullbúin og örugg skotfæri. Tækjakosti til þess verks er gerð góð skil. Sagt er frá því hvernig meta skal gæði skotfæranna og kalla fram nákvæmni og hittni.
Að lokum er tæpt á helstu skotfræðiþáttum sem snerta skotmenn helst sem og hvað hafa þarf í huga þegar þrýstingur og öryggi eru annars vegar.
Hér er á ferðinni margvíslegur fróðleikur bæði fyrir byrjendur og lengra komna þar sem fjallað er ítarlegar um efnið en fram að þessu hefur verið gert á íslensku máli.
Böðvar B. Þorsteinsson vann við kennslu og skólastjórn um langt árabil en vinnur nú við skipstjórn á millilandaskipum. Hann hefur frá unglingsárum stundað skotmennsku og í áratugi grúskað í þeim fræðum sem efni þessarar bókar nær til.
Höfundur: Böðvar Bjarki Þorsteinsson
550 bls. | 238 x 194 | 2018 | ISBN 978-9935-458-78-0
Upplýsingar um afhendingu
- Sérpöntun þýðir að vara sé sérpöntuð fyrir kaupanda og afhendingartími fer eftir lagerstöðu og sendingartíma framleiðanda /heildsölu. Kaupandi er hvattur til að hafa samband til að fá nánari upplýsingar um afhendingartíma og lagerstöðu.
- Biðpöntun þýðir að varan sé ekki til á lager en er í pöntunarferli hjá framleiðanda. Við merkjum viðkomandi vörur með áætluðum afhendingartíma. Haft verður samband við kaupanda þegar varan er komin til landsins og er tilbúin til sendingar.
- Væntanlegar vörur hafa verið afgreiddar af byrgja og eru í flutningi til landsins. Haft verður samband við kaupanda þegar varan er komin til landsins og er tilbúin til sendingar.
- Lagervörur eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun nema ef um (skráningarskyldar) leyfisskyldar vörur sé að ræða. Afgreiðslutími fer þá eftir því hversu lengi tekur að úthluta leyfi fyrir vörunni. Við reynum að merkja vörurnar í vefversluninni með þeim leyfum sem þarf til að kaupa þær, engin ábyrgð er þó tekin á röngum merkingum.
- Sendingakostnaður reiknast í greiðsluferli. Sendingakostnaður fellur niður með völdum sendingarmátum ef pantað er fyrir 15.000 kr. eða meira. Með öðrum sendingarmátum gilda gjaldskrár Íslandspósts og Dropp.
- Á öllum pöntunum dreift af Íslandspósti og Dropp gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar viðkomandi sendingaraðila um afhendingu vörunnar.
- Armory.is ber því enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi.
- Ef að vara týnist í flutningi eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Armory.is til viðtakanda er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.